Reitir hafa samþykkt tilboð um sölu á fasteigninni að Austursíðu 2 á Akureyri en eignin er 8.958 fm. að stærð. Söluverð eignarinnar er 600 m.kr. og greiðist með reiðufé. Afhending er áætluð þann 10. mars 2020, að uppfylltum þeim fyrirvörum sem gerðir eru af hálfu kaupanda, en þeir lúta að könnun á fasteigninni, framtíðarleigutekjum hennar og fjármögnun kaupanna. Salan mun hafa óveruleg áhrif á rekstur Reita og eru áhrifin engin nú á árinu 2019.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *