Categories: Public Companies

Landsbankinn hf.: Landsbankinn semur um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf

Landsbankinn hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 4. október 2019.

Viðskiptavakar munu fyrir opnun markaða dag hvern setja fram kaup- og sölutilboð í sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Lágmarksfjárhæð tilboða í markflokka og flokka sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar miðast við stærð flokkanna og er sem hér segir:

Stærð flokks (ma.kr.) Nafnverð tilboða (m.kr.)
0 – 5 20
5 – 10 60
10 + 80

Markflokkar eru LBANK CB 21, LBANK CB 23, LBANK CBI 24 og LBANK CBI 28. Flokkur sem áður hefur verið skilgreindur sem markflokkur en er ekki lengur í reglulegri útgáfu er LBANK CBI 22.

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind „AUTO“) með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og tekur mið af árafjölda til lokagjalddaga sértryggðu skuldabréfanna, á hverjum tíma, í samræmi við eftirfarandi töflu:

Tími til lokagjalddaga Hámarksverðmunur
0 – 6 mán Enginn
6 mán – 2 ár 0,20%
2 – 4 ár 0,30%
4 – 6 ár 0,35%
6 – 9 ár 0,60%
9 – 12 ár 0,70%
12 – 18 ár 1,00%
18 ár eða lengri 1,15%

Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki og flokkum sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar.

IR Press

Share
Published by
IR Press

Recent Posts

Acting Comptroller Testifies on Agency Activities

WASHINGTON—Acting Comptroller Michael J. Hsu today testified on the Office of the Comptroller of the…

1 day ago

Remarks by Deputy Secretary of the Treasury Wally Adeyemo at the Vice President’s Economic Opportunity Tour Event in Milwaukee, Wisconsin

As Prepared for DeliveryThank you for the kind introduction. It’s great to be here in…

2 days ago

U.S. Department of the Treasury, IRS Release Additional Guidance to Boost American Clean Energy Manufacturing

Guidance Provides Additional Clarification Around Eligibility Determination for Domestic Content Bonus in the Inflation Reduction…

2 days ago

Treasury Announces 2024 National Illicit Finance Strategy

Strategy Highlights Recent Reforms to Close Loopholes Exploited by Illicit Actors; Recommendations Include Increasing Transparency,…

2 days ago

Treasury Designates Sanctions Evaders Facilitating Illicit Arms Transfers between the DPRK and Russia

WASHINGTON — Today, the U.S. Department of the Treasury’s Office of Foreign Assets Control (OFAC)…

2 days ago

Acting Comptroller Testifies on Agency Priorities

WASHINGTON—Acting Comptroller Michael J. Hsu today testified on the Office of the Comptroller of the…

2 days ago